18. ágúst 2007 klukkan 05:12
Maður er sko engan veginn að standa sig með þetta blogg en ég er að reyna að bæta úr því
Það er heldur betur búið að vera mikið um að vera síðan ég bloggaði síðast. Helst má þá nefna komu Andra hingað út, við ætluðum upphaflega að fara saman út og það rættist úr því fyrir rest. Svo kom Sandra hans Ernst út nokkrum dögum seinna. Þessi föngulegi hópur sem að nú býr hér hefur verið duglegur að finna sér sitthvað skemmtilegt að gera.
Fyrir utan það að vera búin að þræða alla helstu matsölustaðina hérna í kring þá erum við líka búin að fara nokkrum sinnum í bíó. Sáum nýju myndina með Adam Sandler og Kevin James sem að heitir "I Now Pronounce You Chuck and Larry" og er hún nokkuð góð. Svo fórum við líka á "Bourne Ultimatum" og er hún ekki eins góð og maður bjóst við, varð fyrir smá vonbrigðum með hana. Svo fórum við á frumsýningu á "Rush Hour 3" í Pleasure Island niðrí Disney og verður að segjast að hún er frekar slök en kannski var maður bara með of miklar væntingar. Gaurinn sem að sat við hliðin á okkur Andra hélt myndinni gjörsamlega uppi með mögnuðum frammíköllum 
Svo fórum við Íslendingarnir (Við 5, Davíð, Óli, Skúli, Steini) niðrá International Drive á stað sem að heitir "Texas de Brazil" þetta er rosa flott brasilískt steikhús og fengum við magnaðan mat þarna. Það er mjög skemmtilegt fyrirkomulag á staðnum, fólk borgar $45 og má borða eins mikið og það vill. Þjónarnir ganga á milli borða með grillspjót með mismunandi kjöti á og ert þú með grænt og rautt merki sem að þú snýrð til að sýna hvort að þú viljir að þeir stoppi hjá þér og gefi þér kjöt eða ekki. Það fóru allir MJÖG mettir þaðan út þetta kvöldið 
Svo um síðustu helgi buðu þau Hólmar og Sólveig okkur í grill heim til sín. Við fengum alveg frábæran mat hjá þeim hjónum, grillaðan kjúkling og nóg af meðlæti. Gott að fá heimatilbúin mat svona einu sinni.
Við strákarnir erum búnir að vera mjög duglegir að fljúga, erum að fara 1-2 sinnum á dag í flug. Ég er búinn að hala inn um 50 tímum á 2 vikum, sem að verður að teljast nokkuð gott. Við erum búnir að fljúga á hina ýmsu velli hérna á Flórídaskaganum og alltaf kemur það manni jafn skemmtilega á óvart hvað aðbúnaðurinn í Ameríku fyrir einkaflugmenn er góður. Allir vellir í góðu ástandi og vel haldið við, þjónusta fyrir vélarnar (fuel og viðhald), matsölustaðir, hvíldarherbergi með Lazy-Boyum, góð aðstaða til að skoða veður og plana flug, fríir bílaleigubílar og margt fleira.
Í gærkvöldi skelltum við svo okkur í "Old Town" sem að er lítið tívolí hér rétt hjá. Þar fórum við í Go-Kart og svo í Nascar simulator sem að var alveg geggjaðurr. Ég og Svavar vorum í öðrum bílnum og í hinum bílnum voru Ernst og Andri. Þetta var bara alvöru spyrna nema það að bílarnir ná 170 km hraða á 2 sekúndum (4G). Ernst og Andri höfðu betur en það munaði 0.04 sekúndum á bílunum. Eftir þetta adrenalín "kick" fóru þeir Andri og Svavar í enn skuggalegra tæki, við köllum tækið Dauðaróluna eða "Swing Of Death". Tækið er þannig að þeir eru klæddir í hálfgerðan svefnpoka sem að er svo hengdur í vír þannig að þeir eru láréttir og svo eru þeir hífðir uppí 300 feta háan turn og svo er þeim sleppt. Þeir náðu yfir 100 km hraða á leiðinni niður og voru öskrin eftir því 
Eftir það lá leiðin í Mini-Golf, mjög flottir vellir hérna útum allt. Skemst er frá því að segja að ég og Ernst skiptum með okkur fyrsta sætinu og verður "rematch" fljótlega.
En ég lofa að það mun ekki líða svona langt á milli blogga næst, El Capitano Out 
Halldór Örn Magnússon
25. júlí 2007 klukkan 00:24
Ég sé að það er ótrúlega mikið af fólki úr ólíklegustu áttum farið að fylgjast með okkur heima á Íslandi, sem að er bara algjör snilld !! Þannig að maður þarf greinilega að fara að blogga meira og taka fleiri myndir

Við kíktum aftur á Fridays til hennar Milu og hún ætlar að taka okkur á djammið með vinkonum sínum, hún lét okkur vita af stað sem að heitir "Naked" og ætlum við að kíkja þangað með þeim fljótlega. Svo sagði hún mér líka að Dj Tiesto muni spila hérna í ágúst/september og er ég byrjaður að leita mér að miða

Svo er Óli fluttur inn í húsið á móti okkur ásamt Chris og Ed, sem að eru helvíti hressir Bretar. Við buðum þeim yfir til okkar á laugardaginn var og héldum létt partý, Logitech hljóðkerfið sem að við fengum á klink í Best Buy kom að góðum notum

Svo fengum við John og Hank til að skutla okkur "Downtown Orlando" á klúbb sem að heitir
ClubParis, sem að er allsvakalegur klúbbur. Við vorum þar uppi á VIP hæðinni og var verið að senda beint út á einni vinsælustu útvarpsstöðinni hérna í Orlando. Við lugum því að Ed ætti afmæli og fékk hann "Shoutout" í beinni. Það hefur aldrei verið eins mikið stjanað við neinn okkar (nema kannski Svavar)

eins og var gert þarna þetta kvöld, þær Vanessa og Kayra hugsuðu mjög vel um okkur. Svo ákváðum við að kíkja á smá klúbbarölt. Byrjuðum að kíkja á Blizz sem er einnig mjög flottur klúbbur nema mun minni en ClubParis og þaðan fórum við svo á Maicos og það var sko upplifun. Þar eru þjónustustúlkurnar eingöngu í mjög flottum undirfötum og eru að bjóða manni uppá "bodyshots". Einnig er róla inni á staðnum og sá Chris til þess að Óli færi með einni stelpunni í róluna og það var mikið hlegið ! Síðan eftir smá rölt þá komu snillingarnir John og Hank og pikkuðu okkur upp og skutluðu okkur heim.
Það er svo margt öðruvísi hérna í Ameríkunni. Við fórum til dæmis að versla seint í gærkvöldi um ellefuleytið og maður hefði nú haldið að við værum að fara að versla inn í rólegheitunum en nei, verslunin var smekkfull og brjálað að gera. Svo er ekki séns að fá leigubíla hérna, maður þarf að panta þá nánast með 2ja tíma fyrirvara.
Svo í morgun fór Ernst í loftið og ætlaði að leika sér í snertilendingum í smá tíma þar sem að veðrið leit ekkert alltof vel út. Þegar hann var búinn að taka 4 lendingar og kominn á "downwind leg" þá missti kappinn allt rafmagn og þurfti hann bara að elta vélina á undan og lenda, alltaf gaman af smá ævintýrum

Ég fór svo loksins í loftið áðan með Zach sem er kennari hjá skólanum og fórum við útí svæði í æfingar á Piper Cadet, þessi vél kemur skemmtilega á óvart og er mjög gaman að fljúga henni.
Halldór Örn Magnússon
17. júlí 2007 klukkan 02:10
Jæja þá gefst smá tími til að blogga, hef verið frekar latur eftir að ég kom út í hitann og svo lentum við í smá vandræðum með internettengingu hérna í nýja húsnæðinu sem að við erum búnir að græja núna 
Það er margt búið að gerast á þessum stutta tíma. Við erum loksins komnir í magnað hús sem að við munum vera í allan tímann. Húsið sem að skólinn útvegaði okkur var ekki uppá marga fiska og ákvaðum við að finna okkur sjálfir annað húsnæði. Það tók svoldinn tíma að græja það en við duttum inná magnaðan stað sem að heitir Venetian Bay þar er allt til alls svo sem: 3 sundlaugar, strandblakvöllur, körfuboltavöllur, tennisvellir, líkamsræktarsalur og spilatækjasalur. Við tókum 4ra herbergja raðhús á leigu sem er með öllu og er um 2ja ára gamalt. Öll húsin í hverfinu líta eins út og er þetta hverfi lokað af með girðingu og vaktað (ekki veitir af þar sem að glæpatíðinin hér er skuggaleg)
Við héldum uppá afmælið hans Svavars á TGI Fridays. Óli og Connor komu með og var mikið hlegið það kvöldið og var það aðallega á kostnað hennar Milu sem að þjónustaði okkur það kvöldið. Þaðan fórum við svo á Foxy´s (Foxes & Hounds) en það er hverfispöbbinn okkar, endaði kvöldið svo í Seven/Eleven með ristaðri kalkúnasamloku 
Við fórum svo á tveimur vélum niður til Daytona Beach og lentum þar og fengum lánaðan "Courtesy car" sem er algjör snilld, þetta er bara bílaleigubíll sem að við fáum frítt og er þetta svona á flestum flugvöllum í USA. Fórum þaðan til hennar Vickie sem er fyrrverandi flugstjóri hjá Delta Airlines og rekur núna verslun með dót fyrir flugmenn. Svo þegar við ætluðum að fara aftur uppá flugvöll þá skall þessi svaka rigning á með þrumum og eldingum, þannig að við urðum veðurtepptir í smá tíma. En það væsti nú ekki umm okkur á vellinum. Þar voru 4 Lazyboyar, 52" sjónvarp, fótanuddtæki og tölvur. Þegar rigningin hætti skelltum við okkur á Outback steakhouse og flugum svo heim.
Við skelltum okkur svo eitt kvöldið niður í "Down Town Disney" og fórum í bíó og sáum Transformers og sú kom á óvart, án efa besta mynd sumarins hingað til. Skoðuðum líka "Pleasure Island" sem er næturlífið í Disney garðinum og það leit mjög vel út, planið er að kíkja þangað þegar Andri og Hólmar verða komnir út.
Í gær flugum við niður til Pompana Beach þar sem að gamli flugskólinn hans Ernst er og kíktum þar í heimsókn. Þaðan flugum við til Fort Pierce, þar er fínn restaurant á sjálfum vellinum og þessi líka fíni matur. Eftir að hafa fyllt belginn fórum við aftur í loftið og flugum heim.
Dagurinn í dag fór nú bara í leiti. Tókum stutt flug í morgun og fórum svo í körfubolta og sólbað. Skelltum okkur svo niður í Florida Mall og þegar við vorum rétt byrjaðir að skoða okkur um laust eldingu niður í mallið og sló allt rafmagn út. Þannig að við drifum okkur í Outletin í staðinn, þar er að finna búðir eins og Nike, Adidas, Diesel, Armani, Sketchers, Levis svo eitthvað sé nefnt.
Svo er ég búinn að henda inn nokkrum nýjum myndum og eru fleiri væntanlegar mjög fljótlega 
Halldór Örn Magnússon
08. júlí 2007 klukkan 17:02
Jæja þá hefur maður loksins tíma til þess að blogga smá, búið að vera mikið að gera eftir komuna til USA. Þetta byrjaði vel létum dekstra við okkur á Saga Loungeinu í Keflavík og sátum á Saga Class á leiðinni út. Þvílíkur munur að sitja í breiðari sætum í 7 tíma flugi og geta sjálfur valið sjónvarpsefni
Sæmi kennari var Capteinn og fengum við því að vera frammi í cockpit í lendingunni og var það alveg magnað þar sem að allir voru að skjóta upp flugeldum í tilefni dagsins (4th of July). Svo tók gamanið við að komast í gegnum Immigration og Tollinn, þar sem að við ætluðum okkur að fara að fljúga flugvélum hér þá vorum við sérstaklega teknir fyrir og tók það okkur rúma 2 tíma að komast í gegnum það allt saman. Svo leigðum við okkur bílaleigubíl til að komast niður til Kissimmee frá flugvellinum (Sanford). Fengum Ford Expedition hjá Hertz, svaka kaggi en án Gps. Þannig að eftir smá vesen og nokkrar U-beygjur þá tókst okkur að finna Hertz niðrí Orlando og skiptum við þar um bíl, fengum enn flottari Suburban með Gps og með því tókst okkur svo að komast heim á hótel. Þannig að þetta var ansi langur dagur hjá okkur

Svo erum við nú bara búnir að vera að leika okkur og skoða okkur um hérna og bíða eftir því að kennslan hefjist á mánudaginn 9. júlí (afmælisdaginn hans Svavars). Þá fáum við líka raðhúsið sem að við munum vera í á meðan dvölinni stendur.
Svo erum við búnir að keyra útum allt að leita að bíl handa Svavari, fórum upp til Orlando og niður til Tampa og kíktum aðeins á Mollin í leiðinni

Eftir mikla leit tók Svavar U-beygju í bílavali og valdi Ford Mustang GT, 2001 árgerð.
En núna erum við á leiðinni í klippingu og svo í sólbað
Halldór Örn Magnússon
28. maí 2007 klukkan 20:14
Jæja þá hefur maður loksins tíma til að skrifa eitthvað inná þetta blogg

Ég kláraði skólaprófin á föstudaginn og þvílíkur léttir að vera búinn með þann pakka. En það er ekki mikil hvíld því að Flugmálastjórnarprófin byrja strax í næstu viku, en það er samt aðeins minni pressa á manni fyrir þau próf.
Á föstudagskvöldið byrjuðum við strákarnir svo kvöldið hérna hjá mér að spjalla og sötra bjór og héðan fórum við svo til Karenar í partý. Þar var allur bekkurinn saman kominn og var mikið drukkið til að fagna próflokunum. Svo fórum við nokkrir saman í bæinn og var bílferðin niður í bæ heldur skrautleg og þökkum við Dj Andra kærlega fyrir hans innlegg

Við kíktum á nokkra staði en enduðum á Sólon og var maður að koma sér heim um 7 leytið.
Svo á laugardagskvöldið var Flugblúbburinn minn Lágflug með grillveislu og partý í skýlinu okkar niðri á flugvelli og var ágætis mæting þangað og svo var kíkt í bæinn. Bærinn var stappaður af fólki sem að var að útskrifast og svo lokaði allt kl. 3

Þannig að það myndaðist leigubílaröð alla leið að Hlöllabátavagninum. Og þar sem að ég er nú ekki þolinmóðasti maðurinn þá hringdi og vakti litla bróðir og lét hann koma að sækja mig, við náðum okkur í pizzu á heimleiðinni og djöfull var hún góð

Svo í gær ákváðum við strákarnir að hittast hjá Matta og taka djamm saman. Ívar byrjaði á að ná í mig og töfðumst við aðeins við Pro spilun heima hjá honum þar sem að hann var "bakaður" og þegar við fórum þaðan vorum við orðnir svo blekaðir að Ívar ældi og flaug líka á hausinn á leiðinni til Matta

Við vorum það seinir að við misstum af strákunum þannig að við fórum beint í bæinn. Við byrjuðum að kíkja á Óliver og þar var fín stemming en fórum svo þaðan að hitta á strákana á Sólon. Svo fóru menn að týnast heim og enduðum ég, Andri og Matti á rölti og kíktum við inn á flesta staði borgarinnar og stemmingin var heldur dræm á flestum þeirra, þannig að maður var að beila heim um 5 leytið.
Halldór Örn Magnússon
28. apríl 2007 klukkan 20:44
Jæja þá hef ég loksins ákveðið að setja upp síðu fyrir sjálfan mig og fara að blogga. Hingað til hef ég ekki nennt að standa í þessu en núna finn ég mig knúinn til að gera þetta þar sem að ég er á leiðinni í nám erlendis og langar að leyfa ykkur Krúttunum að fylgjast með mér (",)
Ég mun ekki vera duglegur að skrifa næsta mánuðinn eða svo, þar sem að ég er að byrja í lokaprófum og mun því hafa lítinn tíma. Hendi síðan inn myndum um leið og ég hef tíma.
Halldór Örn Magnússon